2.11.2008
Spaugstofan á táknmáli
Í gærkvöldi horfði ég á Spaugstofuna í Sjónvarpinu. Og að sjálfsögðu með texta á 888. Í einu þætti var forsætisráðherra að tala og var með þrjár lífverðir. Þarna var táknmálstúlkur í einu horni. Karl Ágúst Úlfsson lék í hlutverki táknmálstúlks og þótti mér takast vel hjá honum sem var skemmtilega sett upp. Látbragðið hans á táknmáli var mjög fyndið. Hægt er að sjá spaugstofuna hér.
Athugasemdir
Já, þetta var mjög fyndið. Takk fyrir.
HHH (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 12:40
Ég hló mikið af þessu fyndna á táknmáli :-) algjör snilld
steinunn (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 20:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.