10.9.2008
Döff brandari: Döff par í móteli
Hér er ein saga sem er þekkt í samfélagi heyrnarlausra. Hún fjallar um heyrnarlausa (Döff) hjón sem gistuðu í móteli. Þau höfðu farið snemma á eftirlaun. Um miðjan nótt vekur eiginkonan húsbóndann sinn og segir honum að hún sé með höfuðverk. Hún biður hann að fara í bílinn og ná í verkjatöflur. Syfjaður húsbóndinn finnur bílinn fyrir utan og finnur verkjatöflurnar í bílnum. Hann snýr til baka í mótelið. En stoppaði - hann mundi ekki í hvaða herbergi þau voru í. Hann hugsaði og ákvað að fara aftur í bílinn. Flautaði lengi og vel. Hann sér ljósin kviknar í öllum herbergjum í mótelinu en eitt herbergi var ennþá slökkt. Það var þeirra greinilega sem var slökkt. Svo hann læsti bílnum og fór í herbergið.
Nokkrar Döff brandarar er hægt að finna á vefnum hér.
Meginflokkur: Menning heyrnarlausra | Aukaflokkur: Heyrnarlausir erlendis | Breytt 12.9.2008 kl. 16:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.