Anna Kristín Óladóttir æfir og keppir í keilu með Keilufélagi Keilu. Í fyrrakvöld varð hún Íslandsmeistari kvenna með forgjöf í keilu. Anna er heyrnarlaus og þetta er glæsilegt afrek hjá henni.
Það er mjög einstakt að heyrnarlaus einstaklingur verði Íslandsmeistari í einhverju íþróttagrein. Ég man ekki eftir að það hafi gerst áður. Því má segja að Anna hefur brotið blað í íþróttasögu heyrnarlausra á Íslandi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Keilufélagið Keila, KFK, eignast Íslandsmeistara í einstaklingsflokki, en aðeins eru rétt rúm fjögur ár síðan félagið var stofnað. Anna hefur æft og keppt í keilu í mörg ár. Þetta er glæsilegt hjá henni og gaman að frétta af góðu gengi hjá heyrnarlausum.
Ég vil óska Önnu Óladóttur innilega til hamingju með tiltilinn.
Flokkur: Heyrnarlausir | Breytt s.d. kl. 14:15 | Facebook
Athugasemdir
Glæsileg hjá henni enda mjög góðar árangur með keilukeppni.
Steinunn (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 14:30
Já, ég er rosalega montin af henni ;)
Frábær árangur hjá henni..... áfram Anna! ;)
Sólrún Birna (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 17:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.